Faxaborg Borgarnesi Reiðhöll á félagssvæði Hmf. Borgfirðings |
|
25.03.2021 15:20Faxaborg og CovidÍ ljósi nýrra sóttvarnarreglna hefur verið komið á
fjöldatakmörkun í Faxaborg frá og með 25. mars. Ekki mega fleiri en 10 manns vera í húsinu hverju sinni, eða
5 í hvorum hluta ef svo ber undir. Brot á þessari reglu verður til þess að
húsinu verður alveg lokað. Námskeiðahald mun haldast óbreytt enda krefst slík kennsla
ekki snertingar eða nálægðar milli kennara og nemenda. Grímuskylda er eins og almennt er kveðið á um, áhorfendur
eru bannaðir. Hver og einn skal huga að sínum sóttvörnum og nota spritt
eftir þörfum. Ekki mæta með kvef! Endilega passið að koma ekki í
reiðhöllina með öndunarfæra- og flensulík einkenni án þess að láta kanna þau
mál með skimun. Meðal reglna sem taka gildi 25. Mars er "Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar. " Skrifað af Kristján Gíslason 04.02.2021 21:33Vesturlandsdeildin 2021Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum fer fram í Faxaborg í vetur. Keppni fer fram á fimm kvöldum og eru þetta dagsetningarnar: 26. febrúar - Fjórgangur 12. mars - Slaktaumatölt 25. mars - Gæðingafimi 15. apríl - Fimmgangur 30. apríl - Tölt og skeið. Öllum keppnunum verður streymt á Alendis TV. Skrifað af Kristján Gíslason 23.01.2021 23:08Áskrift að FaxaborgBúið er að uppfæra lista lykilhafa í Faxaborg og er hægt að nálgast hann hér á undirsíðu. Hestamenn eru hvattir til að kaupa árskort eða annan aðgang að Faxaborg - Það munar um hvern og einn. Því miður hafa heyrst fréttir af því að einhverjir noti höllina án heimildar - er það mjög miður. Eru lykilhafar hvattir til að sýna þessum aðilum enga meðvirkni eða vorkunn og tilkynna þá til stjórnar, en ekki er hægt að vera með stöðugt eftirlit með notendum. Skrifað af Kristján Gíslason
|
Farsími: 8984569Tölvupóstfang: borgfirdingur@borgfirdingur.is |
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is